Færslur: 2006 Júní

17.06.2006 11:01

Gogol Bordello.

Nokkuð ljóst að þessi Hróarskelduþema hafi fokið í rassgat og ekkert við því að gera, en ég fékk þær fréttir fyrr í vikunni að Gogol Bordello hafi boðað komu sína á Skelduna og verð ég því að henda inn færslu um þá kappa.

Ég veit hreinlega ekki alveg hvaðan þau koma, minnir þó að það sé frá Úkraínu og þetta er án efa eitt svakalegasta sviðsband sem ég hef séð. Sviðið breytist í blautann og skítugann sirkus á meðan söngvarinn lemur tvær austur evrópskar ungmeyjar til og frá, lætur þær öskra lögin meðan hann togar í hárið á þeim og spilar svo trommusólo á fötur sem hann hefur komið fyrir yfir hausnum á þeim eða á fótum. Á meðan tóku harmonikkuleikarinn og fiðluleikarinn sig til og fóru í sólókeppni, þetta var sveitt, skothelt gaman.



Mæli eindregið með því að allir sjái þetta band, kemur sterklega til greina sem partýband Hróarskeldu 2006.



Bulla Bulla!

Bordello Kind of Guy.

Start Wearing Purple.


  • 1
Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 3
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 21617
Samtals gestir: 12809
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 03:30:40